Hvernig er hægt að framkvæma launalækkun?

Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að mín laun, sem og annara, séu varin af kjarasamningum og að ekki sé hægt að lækka þau án þess að segja ráðningarsamningi upp.

Ég hef reyndar alltaf haldið líka að hjá ríkinu (sem ég starfa hjá) væri greitt eftir töxtum og að ekki væri um yfirborganir að ræða, a.m.k. ekki hjá hinum almennu starfsmönnum. Þá er svolítið furðulegt að hægt sé að lækka laun þar sem viðkomandi stéttarfélög hafa samið um launataxta sem eru lágmarkslaun fyrir viðkomandi starf. Hinsvegar ef verið er að borga starfsmanni meira en taxtar kjarasamninga segja til um þá er búið að semja við viðkomandi starfsmann um það og sá samningur í gildi þar til honum er sagt upp með lögbundnum fyrirvara. Þá er viðkomandi starfsmanni í sjálfvald sett hvort hann taki tilboði vinnuveitanda um lægri laun (sem eru þó aldrei lægri en taxti kjarasamnings viðkomandi stéttarfélags.

Kannski er þetta bara misskilningur hjá mér en vill þá einhver vera svo vinsamlegur að leiðrétta svo ég haldi ekki áfram á þessum villigötum.


mbl.is Óréttlætanleg ofurlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Þessir krimmar gera bara það sem þeim sýnist.  Því miður.  Ríkið er ekki vant að yfirborga "almenna" starfsmenn bara "spes" starfsmenn.  Þó eru það nú frekar minni fyritækin sem yfirborga.  Stéttafélögin eru varasöm ójá ........eins og hér þá er formaður verkalýðsfélagsins í svo mörgu að hún er í raun "illa"vanhæf sko.  Jamm.....

kv í bæ úr sveit. 

JEG, 2.12.2008 kl. 22:21

2 identicon

Ef það eru launalækkanir í gangi þá er starfsfólk spurt hvort það samþykkir að taka á sig launalækkun, ef það neitar þá heldur það sínum venjulegu launum út uppsagnarfreststímann sem er venjulega 3 mánuðir, eftir þann tíma þá er það annaðhvort "endurráðið" á lækkuðu laununum eða því einfaldlega sagt upp.

Þetta er allavega svona "educated guess" um þetta ferli eftir launalækkanir á mínum vinnustað, sem ég samþykkti án þess að pæla mikið í því, lítil laun eru betri en engin laun.

Jóhannes H. Laxdal (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 23:15

3 Smámynd: sævar már magnúss

sæll sagði ég og fór úr bænum hehe kostaði ca 6000

sævar már magnúss, 4.12.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Óli Valsson
Vilhjálmur Óli Valsson

Tuðari af Guðs náð

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 34946

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband