3.2.2009 | 10:25
Við köllum eftir samstöðu þjóðarinnar......
.....var sagt af þessu sama fólki fyrir þremur mánuðum.
Nú þegar búið er að sparka þeim úr stólunum sýna hinir fyrrverandi ráðherrar mikla ábyrgð og þiggja "það sem að þeim er rétt". Af því að 1. feb er á sunnudegi og þetta lið þurfti að mæta á Bessastaði í myndatöku þá þarf að borga þeim laun út febrúar og svo biðlaun í 6 mánuði.
Það er ekki eins og þetta fólk sé að missa lífsviðurværið, öll eru þau ennþá þingmenn og halda þeim launum.
Nú eiga fyrrverandi ráðherrar að sýna ábyrgð og afsala sér þessum 7 mánaða ráðherralaunum. Ekki gleyma að í þessum hóp eru líka m.a. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir sem sátu fyrir Samfylkinguna.
Ég hvet þetta fólk til að fara að fordæmi Björgvins G. Sigurðssonar og afsala sér þessum launum.
Verða á launum út febrúarmánuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Afnemum biðlaun strax. Þetta er fáránlegt að þetta fólk fái einhver sérlaun sem hinn almenni borgari fær ekki. beint með liðið á atvinnuleysisbætur.....þær eru ekki launatengdar og fullgott handa snobburum sem og hinum almenna borgara.
Jafnrétti.
Kveðja úr sveitinni
JEG, 3.2.2009 kl. 12:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.