Færsluflokkur: Bloggar

Gefum okkur tíma, það liggur ekkert á !!!???!!!

Það er ekki eins og Ísland sé komið á hausinn, allir atvinnulausir  og enginn við stjórn.

Hvað er að þessu liði, það eru komnir 120 dagar og ennþá veit þetta fólk ekkert hvað á að gera og hvernig á að gera það. Nei ekki alveg, það eru allir sammála um hvað þarf að gera en enginn virðist vera búinn að spá í hvernig á að gera hlutina. Mér finnst þetta skrýtið, VG og Framsókn þurfa meiri tíma til að kynna sér málin og Samfylkingin virðist vera í sömu stöðu þrátt fyrir að hafa verið í fráfarandi ríkisstjórn. Það er nú ekki eins og það sé verið að gera 10 ára áætlun, það á að kjósa eftir 3 mánuði svo þetta fólk ætti að fara að drullast til að gera eitthvað.

Nú er þessi gjörningur búinn að taka viku og ekki útséð með niðurstöðuna. Það er nefninlega líka þannig að á meðan forystusauðirnir koma sér ekki saman er enginn að stjórna á Íslandi, engir þingfundir eru haldnir, ráðherrar Samfylkingarinnar eru annaðhvort í viðræðum við VG, í veikindaleyfi eða að reyna að ná sér í fylgi innan flokksins til að halda stólnum sínum. Ráðherrar Sjallana eru hættir störfum og þingmenn úr öllum flokkum eru í innanflokks valdabaráttu.

Ég held að þessi barátta um 3 mánuði sé að kosta okkur allt of mikið.

Hunskist til að klára málin.


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt vegna gengis - eða hvað

Ég var að fletta upp á vef Landsbankans að á sl. 9 mánuðum er gengið búið að falla um 30,9% þannig að lágvöruverðsverslanirnar eru að taka ívið meira til sín en gengisbreytingu.

Svo má benda á hækkanir á mjólkurafurðum sem eru inni í þessu. Ég man ekki betur en afurðaverð til bænda hafi hækkað um 11% í fyrra þannig að ekki skýrir það 30-35% hækkanir.

Við endum alltaf á sama stað, það er verið að borga fyrir bullið í útrásinni og misvitrar fjárfestingar búðareigenda.


mbl.is Bónus hækkar mest en Krónan minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtnar reikniformúlur

Ég segi þetta vegna þess að í gær kom pistill frá Ástu Möller alþingismanni, þar sem hún sagði að verðbólga væri á mánaðarbasis 7,2% sem er tala sem hvorki ég né nokkur sem ég þekki skilur neitt í. Ég held að háttvirtur þingmaður ætti að útskýra sig aðeins betur.

Ég fæ þetta ekki til að ganga upp. Neysluvísitala hækkaði um 1,43% í janúar sem jafngildir 18,6% ársverðbólgu. Þetta þykir mér undarlegt, krónan er búin að styrkjast um 10,36% frá áramótum, olíuverð hefur ekki verið lægra í a.m.k. 5 ár og neysla almennings er í lágmarki.

Samt sem áður mælist verðbólgan 18,6%, allar vörur eru enn að hækka, bensín og dísel eru t.d. búin að hækka um 3 og 2 krónur á árinu, bleyjur í Bónus eru búnar að hækka um u.þ.b. 550 kr á síðustu 3 mánuðum og allar matarkörkur eru enn að hækka um 5-15% og gera það í hverjum mánuði.

Hvernig sendur á þessu. Samkvæmt styrkingu krónunnar ætti verðbólga ekki að vera hækka í janúar heldur standa í stað eða frekar lækka. Er málið ekki bara það að fjármálasnillingarnir sem eru búnir að renna á rassinn með þjóðina eru að láta okkur almenning borga upp tapið sitt?

Er von að maður spyrji?

 


mbl.is Verðbólga minni en spár sýndu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli eða skemmdarverk?

Það er ástæða fyrir að ég set þetta upp í svona spurningu. Ég er nefninlega ekki sáttur við þessa ríkisstjórn og aðgerðaleysi hennar, en starfa minna vegna á ég mjög erfitt með að taka þátt í mótmælum og sérstaklega eins og þau hafa verið undanfarna daga!

Ég er sáttur við að fólk safnist saman og framkalli hávaða eins og gert var við upphaf þingfundar (eftir að þingmenn voru búnir að liggja á meltunni eftir jólin) en ég set strikið við svívirðingar og hvers konar aðgerðir gegn lögreglu. Ég þekki nokkra lögregluþjóna og get fullyrt það að því fólki líður ekki vel með það sem er að gerast í þjóðfélaginu. Þeir sem eru í lögreglunni eru nefninlega fólk með alveg sömu vandamál og við, þau hafa áhyggjur af ástandinu, þarf að sjá fyrir sér og sínum og borga af sínum lánum rétt eins og við. En þau þurfa, auk þessa alls að þola munnlegar svívirðingar, að taka við hrákum, landbúnaðarvörum, málningu, höggum og grjóti. Hvað réttlætir svona framkomu við aðra þegna þessa lands, þó að þeir séu í lögreglubúning? Ekkert segi ég.

Svo erum við komin út í þetta (mynd tekin af mbl.is)

rúðubrot

Hver tekur með sér hamar í mótmæli? Er þetta ekki einstaklingur sem hefur engan annan tilgang en að skemma og eyðileggja? Þessi gjörð gerir ekkert annað en að skemma fyrir mótmælendum og auka okkar skatta, ekki heldur þessi maður að Geir Haarde borgi rúðuna úr eigin vasa eða hvað?

Hvers vegna eru allir í kringum þennan mann ljósmyndarar? Er þetta bara ekki sviðsett vegna þess að þetta er gott myndefni? Ég held nefninlega að fjölmiðlar, fréttafólk og myndatökufólk sé að ýta undir eitthvað svona til að fá safaríkari fréttir. Hvað hefur ekki heyrst trekk í trekk frá ljósmyndurum eftir að upp úr hefur soðið? Jú, endalaus væll yfir harðræði lögreglu og piparúðanum sem þeir fengu yfir sig!! Ég spyr þá á móti: Hvern andskotan eru þið að gera í fararbroddi þeirra sem ráðast gegn valdstjórninni? Haldið ykkur bara til hlés og notið aðdráttarlinsurnar ykkar!!

Ég vona að mótmælin haldi áfram í þeirri mynd að fjöldi fólk safnist saman og berji potta, pönnur og allt sem mögulega getur skapað hávaða og taki sig svo til og syngi ættjarðarlög eins og ég heyrði í beinni í gær. Ef fólk getur komið sér saman um þannig mótmæli og fjölmennt á þau, þá efast ég ekki um að þau skili mun meiri árangri en ofbeldi og skemmdarverk. Munum að mótmæli eru friðsamleg þó að hávaði sé mikill ef ekki er veist að valdstjórninni.

LIFI ÍSLAND


mbl.is Mótmælum lauk um kl. 3
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvelt í framkvæmd

Ef hugur fylgdi máli hjá Ágústi og kollegum hans hjá Samfylkingunni, sem lýst hafa sömu skoðun að kosningar eigi að fara fram í vor, þá væri einfaldlega búið að rjúfa þing og boða til kosninga.

Það er nefninlega þannig að ef Björgvin, Þórunn, Katrín Júl, Helgi Hjörvar, Ágúst Ólafur og þeir þingmenn sem eru að leggja fram frumvarpið um að meirihluti geti krafist kosninga hætta að styðja ríkisstjórnina þá verður boðað til kosninga.

Ég held bara að hræðslan við ISG og löngunin í völd sé mun sterkari en sannfæring pólitíkusanna og þess vegna sé þessi stjórn enn við lýði.

Hættið þessu kjaftæði og látið verkin tala, það er ekki nóg að hreyfa varirnar og segja svo já í þingsal við öllu sem kemur frá ríkisstjórninni.


mbl.is Óhjákvæmilegt að kjósa í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2008

Þetta var vægast sagt viðburðarríkt ár. Þrátt fyrir að ekki hafi fæðst barn á árinu sem er frá mér komið er það samt eitt af þeim skemmtilegustu sem ég hef lifað. Hvað varðar vinnu allavega. Ég held ég hafi aldrei átt jafn fjölbreitt ár vinnulega og 2008 þó að ekki hafi verið skipt um vinnuveitanda á þessu tímabili.

Ég var einhvern tíma búinn að segja að þetta væri endastöðin mín, enda hef ég ekki tollað lengur en 2 ár hjá hverju fyrirtæki fram að þessu. og viti menn, það er komið á þriðja ár og hér er ég enn hjá Gæslunni og þykir starfið ennþá spennandi og krefjandi.

Ég sóttist eftir og fékk að fara túr á danska varðskipinu Vædderen í febrúar og mars en þar fékk ég að eyða 40 dögum í ferð sem var ævintýri frá upphafi til enda. Þar fékk ég nýja og öðruvísi sýn á starfið sem ég er að sinna, en ég fékk í þessari ferð að sinna öllum störfum sem kollegar mínir í Danmörku sinna. Þá var skemmtilegt að komast í siglingar í ís, en á þessum árstíma kemst ekkert skip að austurströnd Grænlands vegna íss. En það var semsagt verið við gæslu úti fyrir austurströnd Grænlands og svo á vesturströndinni í framhaldi. Þar fékk ég að koma í land á nokkrum stöðum og meðal annars að eyða tæpri viku í Nuuk sem var mjög skemmtilegt. Það var mjög fróðlegt að skoða sig um þar og stúdera mannlífið en ekki erum við Íslendingar nægjusamir miðað við nágranna okkar í vestri. Túrinn var svo endaður í Boston þar sem smá innsýn var fengin í störf bandarísku strandgæslunnar. Það er MJÖG öðruvísi svo ekki sé meira sagt.

Eftir þessa ferð tók við hefðbundin vinna, æfingar, gæsla, sjúkraflutningar og bjarganir á þyrlu. Óhætt er að segja að 2008 hafi verið rólegt ár hjá mér hvað útköll varðar en ég fór ekki í nema 14 á móti rúmum 40 árinu áður. Þeim mun meira fékk ég að fljúga til æfinga og gæslu á árinu.

Sumarfríið var tekið í ágúst og fórum við fjölskyldan í sumarbústað á Illugastöðum í Fnjóskadal þar sem við vorum í góðu yfirlæti í viku. Ekki var neitt Mallorca veður en fríið og tilbreytingin voru nóg til að við vorum öll (held ég) endurnærð. Í kjölfarið héldum við til Húsavíkur þar sem flutt var inn á stóra bróður í nokkra daga og þeim verið til ama og leiðinda eins og kostur var. Whistling Enn áttum við tíma eftir í fríi þannig að síðustu vikuna í ágúst fórum við í bústað í Grímsnesinu og vorum þar í grenjandi rigningu 90% af tímanum. Þó náðum við að tína nokkra lítra af bláberjum og var svo sultað þegar heim var komið.

Eftir fríið tók vinnan við aftur ásamt skólanum, en ég var búinn að vera að safna einingum í fjarnámi með stúdentspróf í huga. Sá ég fram á að geta klárað þennan áfanga í desember og stefndi ég ótrauður á það. Smá strik setti í reikninginn að starfsemi stofnunarinnar minnar dróst saman og í kjölfarið var starfsmönnum demt á hvert námskeiðið á fætur öðru, sem gerði okkur ekkert nema gott við þær aðstæður sem voru á þeim tíma. En þetta hafðist samt og útskrifaðist ég 19. desember sem stúdent frá FÁ.

Að lokum má segja frá að í haust datt ég í einhvern heilsupakka og byrjaði að hlaupa út um víðan völl, en ég byrjaði á þessari vitleysu eftir að þrekpróf voru haldin hjá LHG og eftir þaá stuttu vegalengd var ég hér um bil búinn að æla, svo lélegt var ástandið á mér. Ég er búinn að halda mig við þetta sport og hef smásaman verið að lengja í þessu hjá mér og á gamlársdag tók ég þátt í mínu fyrsta keppnishlaupi (síðan ég var 10 ára eða eitthvað) en þetta var 10 kílómetra hlaup og hafði ég aldrei hlaupið svona langt áður. Stefndi ég á að klára þetta með höfuðið hátt á innan við klukkutíma en gerði talsvert betur og fór vegalengdina á 49 mínútum og 10 sekúndum. Þetta hleypir meiri hörku í mig og hef ég sett mér skýr markmið á þessu sviði fyrir árið 2009.

Til þess að veita mér aðhald þá eru markmiðin þessi: Að fara 10 km á innan við 45 mín, 7 km á innan við 30 mín, 3,2 km á innan við 12 mín og svo ætla ég að fara hálft maraþon (21,1 km) í ágúst á innan við 1 klst 45 mín.

Fleira var ekki merkilegt á síðasta ári í mínu lífi, ég nenni ekki að bæta ástandinu á Íslandi inn í þetta, en allt sem skiptir máli er hjá mér og þau eru öll hress. Vonandi verður árið 2009 jafngott ár fyrir mig í því sem máli skiptir og 2008 var.


Kveðja

Ég er ekki dauður. Reyndar hef ég sjaldan verið hressari. Þetta bloggfrí hefur gert mér rosalega gott, svo nú get ég komið tvíefldur til baka, tuðandi sem aldrei fyrr.

Ég ætla reyndar ekki að tuða mikið núna eða í næstu færslu, ég er að reyna að koma í orð uppgjöri ársins 2008 og mun það koma fljótlega.

Farið varlega og ekki missa vatnið í biðinni eftir mér LoL


Jólakveðja

Vindurinn er allur úr mér, ég nenni ekki að hugsa um neitt nema mig og frúnna og börnin. Þetta leiðir af sér að ég ætla að taka mér hlé frá blogginu í smátíma. Ég er hættur að lesa kreppufréttir því ég nenni ekki lengur að pirra mig á því sem ég get ekki breytt. Allir sem hafa lesið á síðunni minni síðustu 2 mánuði sjá hvað ég hef verið pirraður yfir ástandinu, aðgerðunum og aðgerðaleysinu á þessum tíma.

Nú er komið jólafrí (brestur á á mánudaginn (ertu ekki ánægður með þetta Kjartan?)) og samhliða því ætla ég að taka mér frétta- og kreppufrí, það sem gerist mun gerast hvort sem ég verð pirraður eður ei. Ég ætla bara að njóta hátíðarinnar og að sjá börnin mín leika sér úti í snjónum og koma köld og ljómandi af ánægju öll blaut og snjóug full af einlægri barnsgleði. Ég ætla að reyna að falla bara í þann pakka næstu 2 vikurnar.

Þangað til ætla ég að láta bloggið og tuðið vera og óska ykkur því gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


Hvers vegna hraðar en aðrir?

Nú ætla ég ekki að halda því fram að ég þekki alla kosti og galla þess að ganga í ESB. Hingað til hef ég verið andsnúinn því að taka skref í áttina að aðild. Hvers vegna er það? Jú, það þurfa nefninlega að vera meiri og betri ástæður en afþvíbara og allt er betra í krafti stærðar.

Við græðum örugglega eitthvað á því að ganga í ESB, stöðugri mynt a.m.k., en afhverju ætti ESB eitthvað að vera að eltast við litla Ísland sem rambar á barmi gjaldþrots og er búið að vera skotspónn efnahagsbrandara í ársfjórðung eða svo.

Eina ástæðan fyrir áhuga ESB er sú að Brussel-batteríið sækist í auðlindir okkar. Þá er ég ekki eingöngu að tala um fiskinn í sjónum, ég er að tala um  drykkjarvatnið, fallvötn til virkjunar og svo jarðvarmann. Það er ekki sérstakt atvinnuástandið í ESB löndunum, að maður tali ekki um stéttarskiptinguna sem maður sér þar við lýði, sérstaklega í stærri löndunum. Við erum nú þegar farin að sjá hér á landi klíkumyndanir þjóðarbrota sem eru að setjast hér að, þetta eru að verða mjög stór vandamál í ESB og stækka alltaf með sambandinu sjálfu. Það hefur sýnt sig að Schengen er ekki að virka vel og þessi stefna um landamæralausa Evrópu er dæmd til að mistakast.

Nú er bara kominn tími til að stjórnmálamenn og flokkar komi fram og tali af ábyrgð og festu um kosti og galla svo að við getum komist að niðurstöðu sem best er fyrir íslenskt samfélag.


mbl.is Rehn: Ísland gæti komið óvænt með aðildarumsókn 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alveg rétt!

Ég er einn af þeim sem er með minn séreignasparnað hjá íslenska lífeyrissjóðnum og fékk því þetta bréf inn um lúguna hjá mér á fimmtudaginn.

Það sem vekur athygli mína í upphafi er þessi setning að "bankainnistæður skyldu njóta forgangs og vera tryggðar að fullu en ekki skuldabréf í bönkum". OK, ég get tekið undir það að skuldabréf sem bankar og fyrirtæki gefa út eiga ekki að vera ríkistryggð. En hvernig í ósköpunum stendur á því að ÖLL skuldabréfaeign sjóðsins er afskrifuð á einu bretti? Hvernig stendur á því að Ingólfur Guðmundsson stjórnarformaður og Davíð Harðarson framkvæmdastjóri sjóðsins, mennirnir sem eiga að bera ábyrgð á mínu fé, gefa út svona yfirlýsingu þegar aðeins 10 vikur eru frá falli bankanna og ekki útséð um hvað fæst greitt af þessum bréfum. Skuldabréf sem bankar gefa út eru einfaldlega lán til þeirra, rétt eins og skuldabréf sem ég gef út. Ef ég hætti að borga af mínum lánum (skuldabréfum) þá er einfaldlega gengið á eignir mínar. Það hlýtur að  vera sjálfsögð krafa að umsjónarmenn lífeyrisins míns geri það sama fyrir mig.

Það kemur einnig fram að erlend verðbréf séu 45% (40% hlutabréf og 5% skuldabréf) af safninu (LÍF I). Á hvaða gengi ætli það sé reiknað? Ég er hræddur um að virði þessara bréfa sé reiknað á gjaldeyrisvísitölu sem er nálægt 220 stigum og því sé verið að reyna að fegra útkomu sjóðsins. Þegar gengið er komið í raunvirði þá gæti gengisvísitalan verið komin í um 170-180 og þá erum við að tala um 15-20% minna virði á erlendum eignum en reiknað er með í þessu bréfi. Það er athyglisvert að bréfið er sent út þegar krónan er í lágmarki  en ekki er minnst á það einu orði. AÐ vísu eru þessi bréf ekki á fjárfestingardagskrá ársins 2009 en það kemur ekker fram um að búið sé að selja bréfin eða á hvaða verði eða hvernig hagnaður eða tap hefur verið af þeim viðskiptum.

Að lokum þykir mér merkilegt að nafnávöxtun sjóðsins er 9,3% frá áramótum til bankahruns og er neikvæð um 20,4% frá áramótum til 1. des. Þetta þýðir einfaldlega að raunávöxtun er neikvæð um 9% fyrir bankahrun og um 38% eftir hrun. Er þetta ásættanlegt? Ekki í mínum huga og það er bara ekki nóg að fá bréf á glanspappír um að þessum mönnum sem hafa 2-5 milljónir á mánuði í laun "þyki þetta rosalega leitt". Það eina sem þetta bréf hefur gert er að staðfesta að mennirnir sem stjórna þessum sjóðum er ekki hæfir til að sinna heimilisbókhaldi hvað þá meiru.

Stjórnendur sjóðsins eiga að sjálfsögðu að axla ábyrgð, segja af sér og skammast sín fyrir vanhæfni og getuleysi sitt.

 


mbl.is Allt að 30% rýrnun hjá Íslenska lífeyrissjóðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Óli Valsson
Vilhjálmur Óli Valsson

Tuðari af Guðs náð

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 34962

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband