16.6.2008 | 23:15
Sérfræðingar frá Danmörku!!
Bara að spegúlera. Í hverju ætli þessir ágætu danir séu sérfræðingar. Eftir því sem ég best veit eru ekki ísbirnir mikið á ferðinni í Danmörku og þó að Grænland lúti danskri stjórn þá verða danskir náttúrufræðingar ekki sérfræðingar í ísbjarnameðhöndlun.
Þetta eru bara vangaveltur sem flokkast sem lítið annað en röfl.
Erfið aðgerð framundan að Hrauni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.6.2008 | 17:56
Hver er ekki að blogga????
Þegar ég datt inn í þennan bloggheim þá opnaðist ný tilvera fyrir mér.
Líklegasta og ólíklegasta fólk úr mínu lífi, bæði núverandi félagar og eins raddir úr fortíðinni, bæði gamlir vinir og kunningjar sem og skyldfólk þar sem samband hefur verið vanrækt, allavega af minni hálfu, hefur stungið niður fingri á lyklaborð og látið mig vita af sér og fengið upplýsingar um mig og mína hagi í gegnum bloggið.
Ég held bara að ég bjóði mig velkominn til framtíðar (nútímans) og reyni að fylgja þróuninni framvegis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2008 | 11:33
Þjóðgarðsís
Það er best að upplýsa fáfræði mína eina ferðina enn.
Er þetta ekki inn í hinum nýja stóra þjóðgarði og ef svo er getur þá einhver bissnesskarl úti í bæ fjarlægt hluta af þjóðgarðinum og grætt á því pening. Og takið eftir því að um einkaleyfi er að ræða.
Ég tók fréttum af þessum þjóðgarði þannig að allt í honum væri friðað.
Skyldi frú Þórunn vita af þessu?
Ís fluttur út til kælingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.6.2008 | 21:00
Tvískinnungur Bandaríkjamanna.
Þetta er alveg með ólíkindum. Nýbúið að setja kvikindin á lista yfir dýr í útrýmingarhættu og svo er sett í reglugerð að í lagi sé að drepa þau.
Nei, fólkið í USA er alveg ótrúlegt. Fyrir ekki löngu síðan varða allt brjálað vegna hrefnuveiða okkar. Á sama tíma drepa Bandaríkjamenn höfrunga í tug- eða hundruð þúsunda vís með reknetum og réttlæta það með því að það sé heil atvinnugrein sem á viðurværi sitt undir reknetunum.
Hræsni, tvískinnungur og ótrúverðugleiki, það er það sem stendur uppúr þegar Bandaríkin koma til tals.
Mega hrekja ísbirni á brott | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.6.2008 | 11:54
Er þetta eðlilegt?
Ég á ekki til orð. Ekki yfir þessum skrýtna dómi heldur yfir hvernig ferlið hefur verið í kerfinu.
Hvernig lítur þetta út fyrir okkur? Jú það var nauðgað, kært, rannsakað og sýknað í héraðsdómi. Saksóknari áfrýjar til Hæstarétts sem ómerkir sýknudóminn og sendir málið aftur heim í hérað. Og hvað er gert þar? Jú það er bara skipt um dómara og fengin "réttari og ásættanlegri niðurstaða."
Þetta segir svo mikið um dómarana sem skipaðir eru við héraðs- og hæstarétt, ekki er tekið mið af hæfi og/eða gáfnafari þessara einstaklinga heldur eingöngu hversu flokkshollir þeir eru.
Þetta er að koma fyrir æ oftar að mál eru semd heim í hérað aftur og það hlýtur að þýða að dómararnir á fyrsta dómstigi eru ekki hæfir og þá á að losa þá undan því að verða sér til minnkunnar í hverjum dóminum á fætur öðrum.
Ég tek það fram einu sinni enn að ég hef engar forsendur til að tjá mig um dóminn sjálfan og ætla öðrum að rífast um hann.
3 ára fangelsi fyrir nauðgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.6.2008 | 20:17
Kodak móment
Ég bara verð. Guðný mágkona mín spilar með Stjörnunni í Landsbankadeild kvenna. Því miður töpuðu Stjörnustelpur á móti KR í dag, en það er ekki það versta sem gerðist.
Það náðist nefninlega mynd ársins af Guðný í leiknum og ég bara verð að láta hana fylgja með hérna.
Fyrirgefðu Guðný
7.6.2008 | 13:22
Er þetta ekki málið?
Ég gæti trúað að þetta sé áhrifaríkara en að stoppa umferð í klukkutíma og fara svo í vinnuna.
Ætli Sturla viti af þessu?
Vörubílstjórar á Spáni mótmæla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2008 | 16:40
Er ekki komið nóg af kjaftæði?
Þetta fer að verða þreytandi. Núna er það mamma hans sem segir eitthvað.
Það er morgunljóst að maðurinn fer hvergi nema Ferguson samþykki að selja hann og það sér maður ekki gerast. Allavega þykir mér ólíklegt að einhver hjá ManUtd vilji selja besta leikmann í heimi.
Þetta eru endalausar ekki fréttir sem koma um þetta mál og önnur þessu lík.
Mamma segir að Ronaldo fari hvergi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2008 | 16:35
Af hverju umhverfisráðherra?
Ég er ekki að fatta þetta. Nú eiga umhverfisverndunarsinnar eftir að vera brjálaðir í einhverja daga eða vikur. Ég persónulega var ekki að sjá aðra leið en að fella kvikindið. Dýrið komið langt út fyrir sitt náttúrulega umhverfi og hvað áttum við þá að gera?
Bara dópa bangsa upp og leigja flug undir hann til Constable Pynt og tékka hann bara út þar. Eða halda honum dópuðum í hálfan mánuð og senda skip með hann.
Come on verið þið raunsæ og viðurkennið að þetta var eini kosturinn í stöðunni.
Eins er ég ekki að skilja hvað þetta kemur frú Þórunni við. Þetta mál hefur fyrst og fremst að gera með öryggi fólks og búfénaðar en voða lítið með umhverfið að gera.
Einmana og villtur hvítabjörn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.6.2008 | 19:41
Ótrúlegt
Ef ég man rétt þá kom álíka frétt um líkamsleifar sem fundust einhversstaðar í Þýskalandi.
Hvað er málið eiginlega, við vitum að heimstyrjaldir voru tvær á síðustu öld og að milljónir manna létu lífið og voru grafnir eða dysjaðir þar sem þeir féllu.
Þetta eru ekki fréttir og ótrúlegt að miðlar skuli birta þetta.
Líkamsleifar úr fyrri heimstyrjöld finnast í Frakklandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 35087
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar