Færsluflokkur: Bloggar
2.4.2008 | 22:04
Erfitt eftir viku
Þetta var háspennuleikur af bestu gerð, Arsenal sótti og Liverpool gaf fá færi á sér. Þrátt fyrir það voru mínir menn bæði klaufar og óheppnir að klára þetta ekki með 2 mörkum. Það var klárlega víti þegar Hleb var sloppinn í gegn og Bentner óheppinn að vera flækjufótur á línunni þegar Fabregas vann tæklinguna í teignum.
En.........þetta verður háspenna á þriðjudag og ég er ekki viss um að ég nái púlsinum niður fyrir 150 slög á meðan þeim leik stendur.
Ég hef trú á að það lið sem klárar þetta fari alla leið og vinni mótið!!!
Áfram ARSENAL.
Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 1:1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2008 | 18:10
Íslandsdjúp????
Þar sem ég hef verið sjómaður megnið af mínum starfsferli og af því að ég fékk spurningu frá samstarfsmönnum mínum um hvar Íslandsdjúp er þá varpa ég þeirri spurningu áfram því ekki veit ég það.
Prófaði að gúggla en fékk ekki neinar niðurstöður.
Hjálp einhver............
Rannsóknir í Íslandsdjúpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.3.2008 | 00:53
Bless Grænland.
Jæja þá er komið að því. Klukkan eitt eftir hádegi, að staðartíma, yfirgaf HDMS Vædderen Narssarssuaq í síðasta skipti í þessari ferð. Nú er ferðinni heitið hér útfyrir ísinn til æfinga, bæði með öðru gæsluskipi og svo á að prófa vopnastýringakerfið og þjálfa mannskapinn í beitingu skotvopna þetta verða örugglega skemmtilegir 3 dagar sem eru að bresta á.
Þetta er rétt utan við Narssarsuaq.
Þetta er búinn að vera stórkostlegur tími sem ég hef átt hér um borð við strendur Grænlands og í höfnum landsins, lífið um borð er búið að vera mjög lærdómsríkt og heimsóknirnar í þetta stórbrotna land með lágvaxna fólkinu hafa svo sannarlega komið mér á óvart, bæði með fegurð landsins og hversu lítill hluti þess er byggilegur. Ég er svo uppfullur af skemmtilegum minningum, sem ég ætla að reyna að koma frá mér þegar ég er kominn heim, að ég brosi mikið inni í mér og tel að þessi ferð hafi bætt mig sem einstakling. Ég taldi mitt land vera fallegt en ég bara VERÐ að koma hingað að sumarlagi og sjá þetta einstaka land þegar minni hluti þess er hulinn snjó og ís. Þó það taki langan tíma að hlaða inn myndum þá bara verð ég að sýna ykkur þetta og leyfa ykkur að njóta þessa með mér þangað til ég get sett inn albúm með fleiri myndum.
Eftir æfingarnar er ferðum okkar heitið vestur um haf og alla leið til lands draumanna, það er til Boston þar sem taka við samæfingar í leit og björgun með bandarísku strandgæslunni OG það sem verður kannski erfiðara nefninlega verslun, verslun og verslun þar til ekkert verður eftir í búðunum. Mun ég svo fara af skipinu þar og fljúga með hundleiðum heim til fjölskyldu minnar sem ég er farinn að sakna meira en orð fá lýst.
Ég ætla ekki að skrifa aftur fyrr en ég er kominn heim en skila kærri kveðju frá Vædderen. Farið öll varlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.3.2008 | 12:35
Bíóferð og fleira skemmtilegt.
Ég gerði svolítið merkilegan hlut á föstudaginn sl. Ég skellti mér í bíó og sá úrvalsmyndina American Gangster. Það er svosem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að ég hef ekki farið í bíó, nema til að sjá barnamyndir, síðan Hringadróttinssaga-Hilmir snýr aftur var í sýningu OG ég skellti mér með 2 nýjum dönskum vinum mínum í bíóhúsið í NUUK.
Það verður að segjast að það var svolítið öðruvísi að fara í bíóhús þarna, við vorum svolítið snemma í því, keyptum okkur miða, sem til talsverðrar undrunar var ódýrari en á Íslandi, hann kostaði 60 krónur danskar eða um 800 krónur íslenskar. Hins vegar vorum við heppnir með mynd því aðeins ein sýning er á kvöldi og hver mynd aðeins sýnd í 5-10 daga. Það er stór og fínn salurinn í þessu húsi með þægilegum sætum og eru þau númeruð og fær maður að velja sér sæti þegar miðinn er keyptur, eitthvað sem mætti alveg taka upp heima. Það var MJÖG þægilegt að geta sest niður og horft á eina mynd á þess að ljósin væru kveikt og allir ryddust út með hávaða og látum til að bæta í poppskálarnar sínar því ekkert var hléið til að angra fólk.
Það var samt annað sem angraði mig. Innfæddir, þ.e. Grænlendingar voru á stanslausu rápi út og inn til að gera eitthvað sem ég ekki veit hvað er, en þetta byrjaði strax og auglýsingar voru að baki og hélt áfram alveg fram að lokaatriði myndarinnar. Þetta þótti mér merkilegt og skrýtið að sjá því ég er nú þannig að þegar ég fer í bíó þá fer ég til að halla mér aftur og njóta myndarinnar.
Eftir myndina þegar klukkuna var farið að halla í miðnætti gengum við í gegnum miðbæinn og skoðuðum mannlífið eftir því sem kostur er, en það var komið um 18 stiga frost og reyndum við því að ganga frekar rösklega áleiðis að skipinu, en höfnin er í um 25 mínútna göngufæri frá téðum miðbæ.
Þetta var skemmtileg upplifun og gaman að sjá aðeins öðruvísi hegðunarkúltúr en er heima, hér kunna allir að bíða þolinmóðir í röð eftir að að þeim komi og ekki varð ég var við leiðindi í bænum, einstaka fullur einstaklingur á ferðinni, en almennt virtist fólk hafa það gaman á föstudagskvöldi í NUUK og er ég einn af þeim.
Bloggar | Breytt 4.3.2008 kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.3.2008 | 17:27
Einn ágætur
Þeir eru ekki þekktir fyrir að vera mjög leiðinlegir Danirnir. Þessu til sönnunar rakst ég á einn heimatilbúinn í brúnni á herskipinu og læt hann flakka hérmeð.
The captain is in his chair when his staff comes in and ask him what they should do next. The captain is using google earth to decide.
Sir, where are we going now? I think, he says and points to the screen, here to Nuuk, the capital of Greenland.
Nuuk the capital of Greenland, sir???
Definatly, yes Nuuk the capital of Greenland.
Aye, aye sir, right away, nuke the capital of Greenland.
2 officers walk purposefully away from the group and alarm sounds.
.............................
Mission complete sir. What mission??
To nuke the capital of Greenland sir!!!!
Oh, have we arrived already?
No sir, we have nuked it as you ordered.
WHAT, no I said we are going to Nuuk, the capital of Greenland.
Yes sir, we did.
Sigh...oh dear.......well done.....carry on.
Þetta ætti að kenna okkur að vera með framburðinn á hreinu til að fyrirbyggja miskilning sem þennan.
Kveðja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.2.2008 | 13:39
Með Dönum við Grænland
Jæja er ekki best að leyfa fólki aðeins að vera með í þessu. Tengingin hér um borð í HDMS Vædderen / F359 er að vísu ekki upp á marga fiska eða 512 kb og verður það að duga fyrir alla þá 56 sem eru í áhöfn skipsins og svo starfsemi skipsins líka. En látum vaða samt.
Byrjað var að þjálfa áhöfnina í öllum mögulegum verkefnum fyrstu 3 daga ferðarinnar og var það barasta gert í bakgarði okkar, Faxaflóa. Ekki byrjaði þetta vel hjá mér en ég gleymdi rafmagnssnúrunni fyrir tölvuna og ekki er hægt að lifa án hennr. En sem betur fer hefur maður sambönd og snillingarnir í flugdeildinni komu í heimsókn á TF-EIR og færðu mér kapal svo hægt væri að skrásetja það sem framundan var og setja myndirnar á vísan geymslustað. Þá var haldið á Grænlandssund þar sem skoðaðir voru nokkrir rækjutogarar sem voru að veiða langt inn í ísnum sem þarna er.
Það gat verið erfitt að komast á milli í ísnum.
Þá var mér boðið af skipherranum með í útsýnisflug yfir austurströnd Grænlans og var flogið yfir Angmagssaliq og Kulusuk og nágrenni, alveg hreint stórkostlegur túr.
Kulusuk.
Eins og sést þá er Kulusuk bara smábær, þetta eru nánast öll húsin í bænum og það má segja það sama um alla þá bæi sem ég hef séð hérna en þeir eru: Angmassaliq, Kulusuk, Narssarsuaq, Grönnedal og svo erum við núna í höfuðborginni Nuuk en hér búa um 70% fólksins á Grænlandi.
Eftir að hafa komið á þessa staði þá kann ég betur að meta okkar litla land og hversu gott við höfum það þar. Á sama tíma dáist ég af fegurð þessa lands og dáist að hörku þeirra sem byggja það. Það er alveg örugglega ekki öllum gefið að búa við þessar aðstæður, allt ísi lagt og til að komast ferða sinna verða menn að hafa snjósleða, fjórhjól eða hundasleða. Svo er líka SKÍTAKULDI á þessum slóðum, meðalhitastigið er búið að vera í kringum 15 gráður í mínus. Og trúið þið mér það er ekki neitt sérstaklega gott fyrir eyrun eða þá hluta líkamans sem ekki eru huldir fatnaði.
En þar sem það er búið að taka mig góðan part úr deginum að setja þetta inn þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra að sinni og mun ég ekki setja fleiri myndir inn fyrr en ég er kominn heim aftur en þar er úr nægu að velja, þetta verða væntanlega eitthvað um 1000 myndir sem teknar eru í ferðinni.
Bestu kveðjur til ykkar sem lítið hérna inn úr grænlenskum fimbulkulda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.2.2008 | 12:11
Nútíma pólitík
Hef verið að velta fyrir mér, í ljósi atburða í borginni síðustu 4 mánuði, hvað er það sem knýr stjórnmálamennina áfram? Er það hugsjón fyrir betra samfélagi og betri borg eða er það hugsjónin sem virðist vera orðin mikilvægari en þessar áðurnefndu þ.e. hvað get ég gert fyrir mig og þá sem standa mér næst?
Án þess að fara út í atburðarrásina, það hefur nóg verið skrifað um hana á öðrum síðum, þá kemur þetta allt saman hálf furðulega fyrir sjónir allavega ef maður gerir þá sjálfsögðu kröfu að þetta fólk vinni af heilindum fyrir okkur. Núna er oddviti Sjálfstæðisflokksinns búinn að ljúga að öllum sem geta heyrt í honum í fulla 4 mánuði og ekki er ennþá búið að bola honum í burtu eða hann búinn að sjá sóma sinn í að pakka saman og fara heim sjálfur. Nei, ætli hann bíði ekki nógu lengi til að hann fái biðlaun út kjörtímabilið sem formaður borgarráðs. Bak við hann bíða svo erfðaprinsarnir og prinsessurnar eftir því að komast í þessar launuðu stöður sem fylgja því að vera oddviti stóra flokksins.
Það er samt staðreynd að þetta fólk, Gísli Martinn, Hanna Birna, Júlíus Vífill, Kjartan og hinir minni spámennirnir eru ekki hótinu betri, þau "fylkja" sér af "einhug" á bak við Vilhjálm og með því halda þau áfram að skíta, ekki bara upp á bak, heldur alla leið upp á hnakka með áðurnefnda von í huga.
Ef við lítum svo yfir girðinguna þá sjáum við ekki betri hluti þar, Dagur, Svandís, Margrét og Björn, nei ég meina Óskar (Björn hætti víst þegar launuðu stöðurnar fóru frá honum), eru í alveg sama leik, hver og einn vill moka sem mestu undir rassgatið á sjálfum sér og grenja svo þegar mótherjarnir beita sömu brögðum við að útvega sér peningastöðunum.
Við eigum betra skilið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2008 | 17:49
Æfingar
Vorum á æfingu á TF-EIR á þriðjudaginn sl. Það var verið að byrja þjálfun á tveimur nýjum flugmönnum. Þetta var þeirra fyrsta flug og var áætlað að fljúga austur fyrir fjall og taka lendingaræfingar á Bakkaflugvelli, á Vestmannaeyjaflugvelli og Selfossflugvelli. Þegar við vorum að leggja í hann kom fyrirspurn um hvort við gætum svipast um eftir nokkrum hrossum sem höfðu hlaupist undan eigendum sínum upp á fjallið Þríhyrning í Fljótshlíð. Nú er það þannig að okkur í áhöfn þyrlnanna er ekki heimilt að tjá okkur um störf og verkefni okkar en í ljósi umræðu síðustu daga þá ætla ég að taka áhættuna og segja frá þessu. Þetta gerði æfinguna betri að vissu leyti, nýju flugmennirnir fengu aukna staðháttarþekkingu og Andri fékk lendingu á óhefðbundnum stað, þ.e. við félagsheimilið Goðaland. Aldrei stóð til að fara í neina smalamennsku en hrossin brugðust þannig við yfirfluginu að þau fóru á stökki niður snarbratta fjallshlíðina og á þann stað að hægt var að sækja þau með góðu móti. Þetta endaði semsagt á því að vera stórskemmtilegt æfingaflug.
Að öðru leyti ætla ég ekkert að tjá mig um neitt er varðar þetta flug frekar en önnur sem ég hef farið og mun fara í en tek það fram að mínar skoðanir endurspeglast af starfsferli mínum og ef menn vita það ekki þá er ég stýrimaður og hef starfað á sjó, meira og minna síðan 1987.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.2.2008 | 00:17
Eurovision
Mikill er kjánahrollurinn sem hríslast um mig á laugardagskvöldum er ég lími mig niður í sófann og drekk í mig (mis)hallærisleg lög og framkomur listamanna sem keppast um að komast í stóra partíið í sprengjugígunum í Serbíu í vor.
Þó svo að hrollur kjánans heimsæki mig um leið og þátturinn byrjar þá get ég ekki annað en hrifist, eins og flestir Íslendingar, af sjarmanum sem virðist fylgja þessari keppni. Í kvöld gerðist það t.d. að Páll Óskar sagði okkur hvaða lag fer til Serbíu. Að sjálfsögðu er það glimmerpoppið eftir Örlyg Smára í flutningi Eurobandsins. Getur ekki klikkað, frábær söngkona, mjög frambærilegur söngvari og flottar fáklæddar stelpur að sprikla í kringum þau.
Fyndið því að í næstu setningu kom að flutningur Dr. Spock á lagi Dr. Gunna væri ekkert minna en stórkostlegt. Ég verð hins vegar að vera sammála þessari fullyrðingu. Dr. Spock var svo fáránlegur á sviðinu að ekki var hægt annað en að hrífast með þessari vitleysu. OK, hattarnir með gulu fingrunum, það var búið að útskýra uppþvottahanskana, en hvað er málið með bleiku buxurnar og SKÓNA, SÁ EINHVER SKÓNA sem maðurinn var í? Nei ég get ekki ímyndað mér sýrutrippið sem var í gangi þegar þetta átfitt var valið. Hvað ætli Proppé hafi þurft að æfa sig lengi til að falla ekki um koll í hvert sinn er hann hreyfði sig. Það eitt og sér er nóg til að ég taki hatt minn ofan fyrir honum.
Ekki ætla ég að dæma um hvert þessara laga sem fara í úrslit eigi skilið að komast alla leið til Serbíu, ég hef ekki kosið einu sinni í vetur og ætla mér ekki að taka þátt á þann veginn, ég ætla bara að halla mér aftur í sófanum og njóta kjánahrollsins eitt vorið enn.
Góða skemmtun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2008 | 21:46
Hið mikla vald Spaugstofunnar!
Í Kastljósi kvöldsins var Pálmi Gestsson að fara yfir fréttir síðustu viku og að sjálfsögðu þurfti hann að verja síðasta þátt þeirra Spaugstofumanna og verð ég að segja að hann komst betur frá þessu en Karl Ágúst gerði fyrr í vikunni.
Það stakk mig þó eitt komment frá Helga Seljan og ég réði ekki við munnvikin sem heimtuðu að fá að vísa upp í smátíma. "Eftir Halldóri Ásgrímssyni er haft að þeir fimmenningar á stofu spaugssins eru búnir að láta hann (Halldór) og Framsóknarflokkinn líta svo illa út að enginn vill kjósa þá lengur, snökt, og ég held bara, snökt, að ég og vinir mínir verðum barasta að hætta í pólitík, snökt, þið látið okkur líta svo illa út, BUUUUUUHUUUUHUUUUHUUU. Frábært svar frá Pálma, eins og hans er von og vísa, "þessir karlar þurfa ekki hjálp frá nokkrum manni til að líta illa út!" Þarna hitti hann naglann á höfuðið og sló tvær flugur í þessu sama höggi.
Þarna erum við nefninlega komin á þann stað að blessaðir pólitíkusarnir okkar eru einfaldlega með vont PR. Það getur verið að það sé búið að kaupa fullt af flottum og dýrum fötum en það felur bara ekki til lengdar óhreinindin sem eru innan við fötin. Eftir ákveðinn tíma kemur óheiðarleikin, sjálfumhyggjan og rotnunin í ljós og þá er best að snökta og finna sér einhverja leikara, sem túlka sinn sannleika og sínar fréttir á gamansaman og heiðarlegan hátt, og kenna þeim um að hinn almenni borgari sé farinn að hlaupast undan skítalyktinni sem angar af störfum viðkomandi pólitíkusa.
Þetta er bara skemmtilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar