20.4.2008 | 11:06
Hvers vegna?
Hvers vegna er þetta að gerast? Jú líklega er einföld skýrirng á því, nefninlega efnahagsstefna ríkisstjórnar og seðlabankans er eina raunhæfa skýringin á þessu.
Það er nefninlega þannig að á meðan við búum við verðtryggingu sem gerir ekkert annað en að núlla áhættu útlánastofnana og svo vaxtastefnu seðlabankans (Davíðs), þá getum við, hinn almenni skuldari, ekki annað en farið hægt og rólega í þrot. Hvernig stendur á að við lifum við 8-12% verðbólgu í dag og lausnin er að hækka vexti svo að við erum að greiða af íbúðalánum ca 15-18% vexti???
Svo eru menn að kvarta yfir yfirdráttarlánum. Ég veit það bara að mín lán hækka umtalsvert um hver mánaðarmót og eignahluti minn í íbúðinni er að færast smám saman yfir til banka allra landsmanna og ef spá Davíðs um 30% lækkun íbúðaverðs gengur eftir þá fer bannkinn væntanlega fram á að ég greiði lánið hraðar niður eða fer fram á nauðungarsölu.
Burt með verðtryggingu og borgum eðlilega 8-9% vexti af íbúðalánum. Þetta er sjálfsögð krafa til stjórnmálamanna og fjármálafyrirtækja, en við rekum okkur á það á hverjum degi að stjórnmálamennirnir eru í starfi fyrir fjármálageirann en ekki hinn almenna borgara.
Fleiri nauðungarsölur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.4.2008 | 10:52
Allir út að hjóla
Ég hef verið að spegúlera í að kaupa mér hjól og nota það til ferða í vinnu, svona á þeim dögum sem viðrar til þess. Það er til margs að hugsa áður en maður fjárfestir í slíkum grip, eru diska- eða V-bremsur, hversu margir gírar og af hvaða tegund o.s.fr. Það þýðir víst lítið að horfa bara á verðmiðann, mér skilst að það sé þannig í þessum bransa að maður fær ekki gæði fyrir 10 þúsund, það verður að borga nokkra tugi jafnvel hundrað þús fyrir almennilegt hjól. Jafnvel þó mig vanti bara hjól sem drífur í gegnum Fossvogsdalinn og út á flugvöll.
En á flakki mínu um vefsíður hjólaverslana þá fann ég þetta hjól og er þetta bara ekki málið?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.4.2008 | 10:56
Samningar í höfn!
Hef verið að skoða aðeins þá samninga sem eru komnir í höfn, a.m.k. tímabundið. Var að lesa breytingar á samningum VR við SA og kaupmenn. Þetta eru tímamótasamningar að mínu mati, aldrei hefur verið skrifað undir svona lélega samninga áður, ef undar eru skildir síðustu sjómannasamningar.
Það hljómar vel að hækka lágmarkslaun, því að mínu mati eiga lágmark. En staðreyndin er sú að ef við hækkum lágmarkslaun eingöngu þá fjölgum við hópi þeirra sem eru á lágmarkslaunum. Tökum sem dæmi að við hækkum lægstu laun úr 130 þús í 150 þús og aðrar hækkanir eru óverulegar þá erum við búin að færa lægst launaða hópinn upp um 20 þús og bæta í þann hóp öllum sem voru á bilinu 130 -150 þús og lægst launaði hópurinn er orðinn stærri. Gott mál að hækka lægstu laun EN það má ekki bitna á þeim sem eru búnir að berja út auka 10-20 þúsund kall í sín laun. Þetta er eitt af því sem gerir persónusamninga og hvatningu til þeirra svolítið hættulega fyrir verkalýðsfélögin og getur auðveldlega slegið vopnin úr höndum þeirra.
Annað sem stingur í augun eru eftirfarandi textar í samningi VR og SA:
- Grunnhækkun er 8,6% fyrir þá sem eru í starfi hjá sama vinnuveitanda frá 1. okt. 2006. Frá þessu dregst önnur hækkun sem launþegi hefur fengið frá 2. okt. 2006.
- Grunnhækkun er 5,5% fyrir þá sem eru í starfi hjá sama vinnuveitanda frá 1. jan. 2007. Frá þessu dregst önnur hækkun sem launþegi hefur fengið frá 1. jan. 2007.
- Grunnhækkun er 4,5% fyrir þá sem eru í starfi hjá sama vinnuveitanda frá 1. jan. 2007. Frá þessu dregst önnur hækkun sem launþegi hefur fengið frá 1. jan. 2007.
Nú hefur starfsmaður hafið störf á tímabilinu frá 2. janúar 2007 til loka september 2007. Er grunnhækkun launa hans þá 4,5% við gildistöku þessa samnings en frá henni dregst önnur sú launahækkun sem starfsmaður hefur fengið frá þeim tíma er hann var ráðinn til og með gildistöku samningsins, þ.m.t. vegna hækkunar kauptaxta.
Sama klásúla er uppi á teningnum fyrir hækkunina 1. mars 2009 sem á að vera upp á 3,5% en frá því dragast þær hækkanir sem komið hafa til á samningstímanum fram að þessari dagsetningu.
Ég verð bara að öskra þegar ég les þetta, HVERJUM DETTUR Í HUG AÐ SEMJA FYRIR SKJÓLSTÆÐINGA SÍNA AÐ ENGIN HÆKKUN SÉ Á BORÐINU. Það er nefninlega þannig að þetta sama stéttarfélag hvetur til persónusamninga og er með árlegt launaviðtal allra starfsmanna og segir svo bara með þessum samningum, við nennum þessu ekki gerið þetta bara sjálf. Á sama tíma skrifa forkólfar stéttarfélagsins upp á samning sem dregur launahækkanir á síðasta samningstímabili frá hækkunum á þessu samningstímabili.
Hvað er að þessu fólki, það á að segja af sér og skammast sín.......en það kemur bara kommentin.....lengra verður ekki náð að þessu sinni.
Ég segi ykkur það, Samtök atvinnulífsins hlær að fólki fyrir þessa vitleysu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2008 | 16:56
Einmitt
Það er nefninlega það. Ísland og SA borga hæstu laun í heimi. Í hvaða heimi lifir Hannes og hans kollegar hjá SA?? Ég spyr því við erum að sjá ASÍ samninga sem eru brostnir nú þegar þar sem megnið af launþegum eru með tekjur sem eru undir 200 þúsund krónum á mánuði. Ég held að þessir ágætu vinnuveitendur okkar hjá SA ættu að skammast sín fyrir að láta svona hluti frá sér.
Það eina sem getur bjargað vinnumarkaðinum er að flytja inn 500-1000 erlenda starfsmenn. Auðvitað, afhverju var maður ekki löngu búinn að sjá þetta. Jú þetta er rétt það mun bjarga íslensku þjóðfélagi að flytja inn fólk frá austur Evrópu til að vinna almennu störfin vegna þess að þetta fólk er ekki með svona óheyrilegar kröfur eins og íslenski almúginn.
En hvað heldur Hannes eiginlega að Ísland sé á alþjóðlegan mælikvarða? Ég get ekki séð að við getum laðað að hæfustu sérfræðinga heimsins til að starfa hérna öðruvísi en að borga þeim ofurlaun. Ekki koma þeir vegna orðsporsins sem Ísland hefur, hvar eru hátæknifyrirtækin sem gætu laðað þessa starfsmenn til sín. Jú eru þau ekki farin erlendis eða á leið þangað. Nema kannski Decode, það er bara á leiðinni í gjaldþrot.
Vonandi er ég svona illa upplýstur en ég held ekki
Baráttan um hæft starfsfólk á eftir að harðna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.4.2008 | 18:41
Ehemmm
Það er spurning hvort ég myndi hengja þetta upp á vegg hjá mér ef einhver myndi borga mér 35 milljónir dollara fyrir.
Ég er ekki viss.
Sá sjálfa sig á rándýru málverki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.4.2008 | 23:28
USCGC Spencer
Jæja, þá er komið að því að ræða aðeins um veru mína um borð í bandaríska strandgæsluskipinu Spencer, en eins og komið hefur fram áður þá fengum við Rögnvaldur að eyða 2 dögum þar um borð og fengum þar flotta kynningu á öðruvísi kúltúr og aðbúnaði en við eigum að venjast.
Eins og glöggir sjá þá er þetta skip talsvert öðruvísi en okkar ágætu varðskip, þó þetta sé í sama stærðarflokki, þ.e. um 70 metra langt og 10 metra breitt. Það sem ég er hrifnastur af við þetta skip er að þyrluskýlið er einskonar harmonikka en það dregst aftur á þyrlupallinn og yfir viðkomandi þyrlu en ekki eins og er um borð í okkar skipum sem og skipum Dana að þyrluskýlið blokkar helminginn af öllu dekkplássi og svo er þyrlan dregin inn í skýlið. Þar með er það upptalið sem þetta skip hefur fram yfir okkar, nema ég telji það kost að vera með 6 sinnum fleiri í áhöfn. Það er nefninlega þannig að á okkar skipum eru 18 kallar/kellingar (takið eftir að hér er gætt fyllsta jafnræðis) en á þessu skipi eru aðeins......og haldið ykkur nú...104 kvikindi af öllum stærðum og gerðum. Þetta verður til þess að ekki verður tækniþróunin jafn hröð og við má búast hjá þessari stóru þjóð, því eins og næstráðandi skipsins komst svo skemmtilega að orði þegar hann var að sýna mér skipið:"we don´t need any technology, we have the manpower". Og þetta er raunin, t.d. þegar verið var að undirbúa dráttaræfingu með Vædderen, þá voru bara sendir 15 kallar að draga til dráttartrossuna með handafli en trossan var geymd einu þilfari neðar og talsvert framar í skipinu. Dráttartrossan dregin upp á dekk.
Það má svo geta þess að þessi trossa sem notuð er um borð í bandaríska skipinu er svo þung að hún sekkur. Þegar búið er að draga þetta fram og til baka þá endar hún svona á þilfarinu.Þetta er snyrtilega gengið frá.
En við skulum víkja aðeins að lífinu um borð frekar en einhverjum leiðindum úr starfsháttabókinni. Það gefur auga leið að frekar þröngt er um liðlega 100 kalla í skipi af þessari stærð. Allavega er ég hættur að kvarta yfir vistarverunum hjá okkur. Það eru 4 æðstu stjórnendurnir sem eru með sér klefa, hinir yfirmennirnir og svo millistjórnendurnir eru í tveggja manna klefum sem eru þannig uppsettir að 2 klefar deila salernisaðstöðu. En þá kemur að þeim óbreyttu. Þeir hafa samtals 4 klefa og í hverjum þeirra eru 21 sem gista saman!!!!!! Það eru semsagt 7 kojustæði upp á 3 hæðir og ekkert annað er í klefanum en salernisaðstaðan er frammi. Ég er ekki með mynd af þessu þar sem alltaf er einhver sofandi í þessum klefum og ekki hægt að vera að hleypa einhverjum túristum þarna inn með flassið blikkandi á myndavélinni. Það er helst að Röggi geti sagt eitthvað um þetta þar sem hann gisti í svona klefa á meðan dvöl okkar stóð. Ég hins vegar var í góðu yfirlæti uppi á SNOB HILL þ.e.a.s. á yfirmannaganginum og þar sem einn yfirmaðurinn var í landi á námskeiði þá var ég með klefa út af fyrir mig. Það er misskipt á milli stétta í Ameríku, maður sá það vel þarna um borð. Þar sem ég ber yfirmannastrípur á öxlunum og hef titilinn Leutenant þá mátti ég ekki mæta lægra settum einstakling öðruvísi en viðkomandi stæði teinréttur og gæfi honour á meðan ég gekk hjá. Þeir hafa sjálfsagt verið fegnir þegar ég yfirgaf skipið þar sem ég var stanslaust á ferðinni allann tímann þarna. Einnig var þetta auðséð á mataraðstöðu yfir- og undirmanna, á meðan undirmennirnir fóru í mötuneytið þar sem var ausið á plastbakka handa þeim (alveg eins og í bíómyndunum), þá var í yfirmanna matsalnum leirtau á borðum og 3 þjónar sem báru í mann matinn (það eru 11 yfirmenn um borð).
En það var einnig frábært að fá að fara með þeim í fiskveiðieftirlit á miðunum norður af þorskhöfða (Cape Cod). Það var skrýtið að biðjast undan því að fara með skothelt vesti en það er standard hjá þeim auk þess sem þeir fara fullvopnaðir í þannig eftirlit. Annars fannst mér erfitt að vera um borð í fiskibátnum og sjá sjómennina henda öllum fiskinum fyrir borð aftur. Af um 1500 kg. holi hefur verið hirt um 70 kg. af skrápflúru og restinni mokaða í sjóinn aftur. Lögin í USA eru nefninlega þannig að það er BANNAÐ að koma með smærri fisk en xx stærð í land og skylt að kasta þeim fiski í hafið aftur. Þegar ég spurði hvort þeir vissu eitthvað um hvað mikið af þessum fiski lifði þetta af þá stóð ekki á svari: "Það skiptir ekki máli, dauði fiskurinn verður bara hluti af fæðukeðjunni aftur". Það er ekki hægt að rífast við þessi rök.
En það verður að segjast eins og er að ég kem miklu ríkari af reynslu og þekkingu til baka úr þessari ferð og hefði ekki fyrir nokkurn mun viljað missa af þessu.
Læt þetta duga í bili vona að einhver hafi náð að halda sér vakandi niður alla síðuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.4.2008 | 22:39
Ferðasaga 1. hluti
Þá var siglt suður fyrir Grænland og haldið til Narssarsuaq þar sem skipt var um hluta áhafnar og í kjölfarið var farið í verkefni sem eru fyrst og fremst til stuðnings byggðum landsins, allt frá því að brjóta ís og búa til siglingaleiðir og upp í að flytja vörur og fólk á milli staða. Milli þessara fólksflutninga var miklum tíma eytt í æfingar og er lögð mikil áhersla á að viðhalda hæfni manna í þeim verkefnum sem skipið er gert út fyrir. Vegna viðhalds þurfti að stoppa í Nuuk í 5 daga. Í Nuuk nýtti ég tímann til gönguferða um plássið, svona eins og hitastigið leyfði því það er staðreynd að eftir rúmlega tveggja tíma útiveru er maður orðinn frekar kaldur. Hitamælirinn á símanum mínum sagði, eftir 2,5 tíma að hitastigið væri 4 gráður og ég ver með símann í vasanum!!!!
Eftir Nuuk var haldið til Narssarsuaq þar sem komu svo um borð 15 nemar úr skóla óbreyttra hermanna ásamt leiðbeinanda sínum en er þetta val hjá þeim þar sem allir þurfa að skila samfélagsþjónustu í Danmörku ef þeir fara ekki í framhaldsnám. (Ég held örugglega að þetta sé rétt hjá mér).
Þaðan var haldið út á grænlensk sund þar sem haldnar voru almennar bruna- björgunar- og dráttaræfingar með gæslubátnum Tulugaq og í kjölfarið voru skotæfingar af stærri vopnum skipsins, þ.e. fallbyssu og 50 calibera vélbyssu.Að þeim æfingum loknum var lagt af stað til Boston þar sem skipið var í leitar- og björgunaræfingum með bandarísku strandgæslunni en það kemur sér pistill um þá ferð og sér myndaalbúm.Hvort sem þið trúið eða ekki þá talaði ég eingöngu dönsku alla ferðina og eru framfarirnar í tungumálinu stjarnfræðilegar. Ótrúlegt er langlundargeð Dananna að endurtaka sig þegar ég hváði og að þeir skuli hafa reynt að skilja það sem ég var að reyna að koma frá mér.
Þetta er ekki mikið sem ég er að segja en ég verð að passa mig vegna þess að þetta er jú herskip og það eru allar þeirra ferðir og verkefni trúnaðarmál svo þetta verður að vera svona meira almennt hjá mér.
Ég setti samt nokkrar myndir inn í albúm sem heitir Vædderen og set svo meira frá USA þegar fram líða stundir. Ég er að reyna að eyða tíma mínum í námsbækur þessa dagana, þ.e. þegar ég er ekki að vinna, en próf eru hjá mér fyrstu vikuna í maí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.4.2008 | 16:57
Draumurinn búinn :-(
Jæja, þetta er búið...... Liverpool hafði það í gærkvöldi. Þetta er svekkjandi, ég hélt þetta væri komið þegar Ade skoraði og bara 6 mín eftir.....en Babel gerði vel í að fylgja boltanum eftir þegar jafnvægið var farið og sótti vítið og vitið þið hvað.....það er ekkert við því að segja, svona er boltinn og þess vegna er þetta vinsælasta sport í heimi.
Það var bæði leiðinlegt og skemmtilegt að mæta í vinnuna í dag, leiðinlegt vegna úrslitanna, skemmtilegt vegna allra umræðanna og álitana sem menn höfðu á vítinu, leiknum og úrslitunum.
En það sem stendur upp úr er að munurinn á þessum tveimur liðum er mjög lítill, þessi rimma réðst eingöngu á mismunandi dómum í þessum tveimur leikjum og hvort liðið sem var hefði getað komist áfram. En þvílík auglýsing fyrir enska knattspyrnu, þetta er það besta sem sést hefur í meistaradeildinni í vetur.
Ég sagði það í síðustu færslu að liðið sem stæði uppi sem sigurvegari eftir þessa rimmu myndi vinna mótið og ég ætla að standa við það.
Til hamingju Liverpool.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.4.2008 | 22:04
Erfitt eftir viku
Þetta var háspennuleikur af bestu gerð, Arsenal sótti og Liverpool gaf fá færi á sér. Þrátt fyrir það voru mínir menn bæði klaufar og óheppnir að klára þetta ekki með 2 mörkum. Það var klárlega víti þegar Hleb var sloppinn í gegn og Bentner óheppinn að vera flækjufótur á línunni þegar Fabregas vann tæklinguna í teignum.
En.........þetta verður háspenna á þriðjudag og ég er ekki viss um að ég nái púlsinum niður fyrir 150 slög á meðan þeim leik stendur.
Ég hef trú á að það lið sem klárar þetta fari alla leið og vinni mótið!!!
Áfram ARSENAL.
Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 1:1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2008 | 18:10
Íslandsdjúp????
Þar sem ég hef verið sjómaður megnið af mínum starfsferli og af því að ég fékk spurningu frá samstarfsmönnum mínum um hvar Íslandsdjúp er þá varpa ég þeirri spurningu áfram því ekki veit ég það.
Prófaði að gúggla en fékk ekki neinar niðurstöður.
Hjálp einhver............
Rannsóknir í Íslandsdjúpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar